Kirkjugripir

Föstudaginn 23. apríl 2004, kl. 19:48:18 (6714)

2004-04-23 19:48:18# 130. lþ. 101.19 fundur 434. mál: #A kirkjugripir# þál., MÞH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 101. fundur, 130. lþ.

[19:48]

Magnús Þór Hafsteinsson (andsvar):

Frú forseti. Ég vildi koma því á framfæri að ég held að við í Frjálsl. séum ekkert verra kristið fólk en félagar í Samf. Við erum svo sannarlega frjálslyndur flokkur og innan okkar hóps rúmast allir trúarflokkar, en ég get upplýst það hér og nú að í okkar þingmannaliði eru menn sem bæði eru heittrúaðir á kristna trú og líka á ásatrú og ég sé í raun og veru ekkert athugavert við það. Ég vildi bara fá að koma því á framfæri.