LMR fyrir GHH

Mánudaginn 26. apríl 2004, kl. 15:02:22 (6717)

2004-04-26 15:02:22# 130. lþ. 102.95 fundur 496#B LMR fyrir GHH#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 102. fundur, 130. lþ.

[15:02]

Forseti (Halldór Blöndal):

Borist hefur svohljóðandi bréf frá 1. þm. Reykv. s., Geir H. Haarde, dags. 26. apríl:

,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, Lára Margrét Ragnarsdóttir, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.``

Lára Margrét Ragnarsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hún boðin velkomin til starfa á ný.