Frumvarp um eignarhald á fjölmiðlum

Mánudaginn 26. apríl 2004, kl. 15:10:48 (6723)

2004-04-26 15:10:48# 130. lþ. 102.1 fundur 498#B frumvarp um eignarhald á fjölmiðlum# (óundirbúin fsp.), forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 102. fundur, 130. lþ.

[15:10]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Herra forseti. Ég fagna því að hv. þm. er farin að fjalla um efni skýrslunnar eftir að hafa lesið hana. Að öðru leyti vil ég taka fram að við samningu þessa frv. sem ég ætla ekki að ræða efnislega var auðvitað horft til og höfð hliðsjón af öllum þeim athugasemdum sem gerðar voru af hálfu nefndarinnar og þær voru skoðaðar í lögfræðilegu samhengi. Það mun allt skýrast við umræðu um málið en við teljum ekki ástæðu til að ætla annað en að það frv. sem þingflokkarnir hafa nú samþykkt að leggja fram, stjórnarflokkarnir, standist íslenska stjórnskipun í hvívetna.