Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):
Herra forseti. Það sem meginmáli skiptir er að fyrir liggur vilji stjórnarflokkanna til að lækka skatta. Það liggur fyrir að þannig er búið um efnahagsmálin í tíð núverandi ríkisstjórnar að möguleikar verði á því að lækka skatta. Það er mikilvægast af öllu.
Vegna orða um að við séum að hygla fjármagnseigendum vek ég athygli á því að nýverið var erfðafjárskattur lækkaður og fyrir það var ríkisstjórnin gagnrýnd opinberlega. Fyrir hvað? Jú, að erfðafjárskattur væri lækkaður á þessum venjulegum borgurum en hann væri hins vegar hækkaður á hlutafjáreigendum. Þetta gengur þvert á það sem hv. þm. sagði.