Siglingastofnun Íslands

Mánudaginn 26. apríl 2004, kl. 15:49:54 (6744)

2004-04-26 15:49:54# 130. lþ. 102.13 fundur 467. mál: #A Siglingastofnun Íslands# (siglingavernd, kóðar, gjaldtaka) frv. 39/2004, GAK (um atkvæðagreiðslu)
[prenta uppsett í dálka] 102. fundur, 130. lþ.

[15:49]

Guðjón A. Kristjánsson (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Það var sérstaklega óskað eftir því við afgreiðslu þessa máls að fyrir lægju upplýsingar um það í nefndinni hver gjaldtakan yrði samkvæmt þeim gjaldtöku\-ákvæðum sem hér liggja fyrir. Því miður hafa þær upplýsingar ekki borist og þess vegna hef ég fyrirvara á varðandi þá afgreiðslu málsins.