Vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.

Mánudaginn 26. apríl 2004, kl. 18:44:22 (6798)

2004-04-26 18:44:22# 130. lþ. 102.37 fundur 683. mál: #A vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.# (metangas og rafmagn) frv. 29/2004, Frsm. PHB
[prenta uppsett í dálka] 102. fundur, 130. lþ.

[18:44]

Frsm. efh.- og viðskn. (Pétur H. Blöndal):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nál. um frv. til laga um breyting á lögum nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., með síðari breytingum. Það er að finna á þskj. 1463.

Hv. efh.- og viðskn. fjallaði um málið og fékk á sinn fund Elmar H. Hallgrímsson frá fjármálaráðuneytinu.

Í frumvarpinu er lagt til að framlengd verði tímabundin heimild til að lækka vörugjald af svokölluðum tvíorkubifreiðum, þ.e. bifreiðum með vélar sem nýta metangas eða rafmagn að verulegu leyti í stað bensíns eða dísilolíu.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Hv. þm. Össur Skarphéðinsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Einar Már Sigurðarson og Ögmundur Jónasson skrifa undir álitið með fyrirvara og áskilja sér rétt til að leggja fram og styðja breytingartillögur við málið.

Hv. þm. Gunnar Örlygsson sat fund nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er hann samþykkur áliti þessu. Hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir nefndarálitið rita hv. þm. Pétur H. Blöndal, Gunnar Birgisson, Dagný Jónsdóttir, Birgir Ármannsson, Össur Skarphéðinsson, með fyrirvara, Jóhanna Sigurðardóttir, með fyrirvara, Einar Már Sigurðarson, með fyrirvara og Ögmundur Jónasson, með fyrirvara.