Drífa Hjartardóttir:
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Brynju Magnúsdóttur fyrir að vekja máls á þessu ágæta máli og því starfi sem hefur farið fram í menningarhúsum, t.d. í Gamla apótekinu. Þar fór fram afskaplega merkilegt brautryðjandastarf. Gamla apótekið hefur verið til fyrirmyndar fyrir önnur sveitarfélög, að fylgja í kjölfarið.
Ég tek undir með hæstv. menntrh., Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, með að það er kannski ekki bein þörf á lagasetningu um þessi hús. Mestu máli skiptir að sveitarfélögin og unga fólki móti þeim starfsreglur sjálf. Það starf þarf að mótast af fólkinu sjálfu en ekki að ríkið ákveði hvernig starfið eigi að fara fram. Mestu máli skiptir að húsin hafi fjárhagslegan grundvöll og þar fari fram fjölbreytilegt og gott starf. Sérstaklega þarf að vinna vel að forvarnastörfum eins og þar hefur verið gert.