Lára Stefánsdóttir:
Herra forseti. Ég lýsi yfir ánægju minni með þá umræðu sem á sér stað um þetta efni og sérstaklega möguleikana á að vinna störf á vegum ríkisins víða um land. Ég hef reynslu af slíkri vinnu í hartnær átta ár og vil sérstaklega nefna og geta þess að hæfileiki stofnana til að vinna með fólki dreift er mjög mismunandi, á meðan sumar stofnanir ná þessu mjög leikið þannig að maður upplifi að maður vinni hjá þeim dagsdaglega þó að maður sé fjarri. Þess vegna tel ég mikilvægt að huga að því hvernig menn læra að vinna á þennan hátt.
Ég vil líka hvetja hæstv. ráðherra til að gefa aukið frelsi til búsetu þegar störf eru auglýst vegna þess að eitt er að flytja stofnun, annað er að gera mönnum kleift að vinna ákveðna vinnu eða ákveðin störf annars staðar en á meginheimasetu stofnunar. Þetta er vinna sem ég þekki mætavel og vil leggja áherslu á að stofnanir læri að vinna yfir fjarlægðir.