Fyrirspyrjandi (Sigurjón Þórðarson):
Herra forseti. Ég þakka ráðherra hæstv. fyrir svörin. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra, í framhaldi af svörum hennar af því að það kom ekki nákvæmlega fram, að hvaða leyti þyrfti að auka við starfsemi Samkeppnisstofnunar. Hvað þarf að fjölga starfsmönnum mikið til að mæta þörfum stofnunarinnar? Væri ekki rétt að fara í stjórnsýsluúttekt á stofnuninni og meta þörfina, bera fjölda stöðugilda t.d. saman við erlendar stofnanir og meta hvort e.t.v. sé hægt að hagræða og bæta afgreiðsluhraðann innan stofnunarinnar?
Einnig væri fróðlegt að fá að heyra álit hæstv. ráðherra varðandi það hvort ekki sé skynsamlegt að forgangsraða sérstaklega brotum á fjarskiptamarkaði. Ég tel svo vera, sérstaklega í ljósi þess að tækniþróun er ör. Eins og fram kom í máli mínu áðan kann niðurstaða í eins árs gömlu máli ekki að skipta neinu máli lengur.
Einnig væri fróðlegt að heyra álit hæstv. ráðherra á því hvort það komi ekki til greina að setja hluta stofnunarinnar út á landi. Í því sambandi vil ég t.d. nefna Ísafjörð. Rætt hefur verið um að þar hafi opinberum störfum beinlínis fækkað. Mikil gagnrýni hefur verið sett fram á flokksforustu Framsfl. á Ísafirði varðandi það að ríkisstjórnin hafi beinlínis fækkað þar störfum þrátt fyrir fyrirheit um annað. Sjálfur formaður Framsfl. lofaði því að komið væri að Norðvesturkjördæmi og þá spyr ég hæstv. ráðherra: Er komið að Norðvesturkjördæminu?