Landbúnaðarráðherra (Guðni Ágústsson):
Hæstv. forseti. Ég var ekki að deila um þetta atriði við hv. þm. þótt ég færi vel yfir það sem er að gerast í Evrópu sem haft er til viðmiðunar. Ég var að tala um allt annað úr ræðustólnum þegar hv. þm. trylltist í salnum, sem er mjög óþægilegt undir umræðu. Menn eiga auðvitað að sýna gætni og forseti verður að taka slíka menn til bæna. Við vitum hvað á að gera við slíka menn þegar þeir láta svona í þingsalnum.
Ég var fyrst og fremst að tala um þá umræðu sem hv. þm. hafði uppi um að hagræðingin í sláturhúsunum yrði óhagstæð fyrir bændur og neytendur. Ég hef margfarið yfir það. Ég var ekkert að deila um hitt við hann. Ég rakti mjög vel í ræðu minni hvernig samanburðurinn er gerður við Evrópu. Fyrst og fremst er þessi ákvörðun auðvitað tekin af samtökum bændanna með áskorun um að reglugerðin verði sett. Það hefur verið gert þannig að þessi mál eru að því leyti hrein.