Bryndís Hlöðversdóttir (andsvar):
Frú forseti. Munurinn á Samf. og Sjálfstfl. í þessum efnum er greinilega sá að við þurftum ekki að bíða eftir neinni skýrslu til að koma fram með tillögur okkar. Við höfum margsinnis sagt að ástæða sé til að fylgjast sérstaklega með eignarhaldi á fjölmiðlum umfram aðra atvinnustarfsemi. Við höfum lagt fram tillögur um það og langmikilvægast er að við gerðum það fyrir löngu síðan og þurftum ekki að bíða eftir skýrslu til þess. Mikilvægast er að tryggja ritstjórnarlegt sjálfstæði fjölmiðlanna annars vegar og hins vegar gagnsæi þannig að neytendur viti hverjir eigi fjölmiðlana. Hvers vegna þessar áherslur eru ekki hjá ríkisstjórninni veit ég ekki en þær eru einfaldlega allt aðrar en tillögur okkar sem við lögðum fram fyrir löngu síðan. Við viljum líka styrkja starfsumhverfi þeirra sem starfa á fjölmiðlunum með því að setja skýrar reglur um vald heimildarmanna. Sjálfstfl. er ekki á þessari braut. Hann vill bara setja lög, banna þetta og banna hitt, banna sumum að fjárfesta í ljósvakamiðlum. Þeir mega ekki fjárfesta neitt í þeim. Ekki bara að þeir megi ekki eiga ráðandi hlut, þeir mega ekki fjárfesta neitt. Og þeir geta ekki svarað því hvaða fordæmi eru fyrir því.