Jóhann Ársælsson (andsvar):
Hæstv. forseti. Það væri nú gott ef hæstv. ráðherra kæmist til nútímans, áttaði sig á þeirri tækni sem er komin og að menn muni nýta hana. Menn eru farnir að nýta hana, það er verið að senda sjónvarpsstöðvarefni til Íslands í stórum stíl núna og það er hægt að gera samninga við þessi sömu fyrirtæki um að flytja efni til Íslands í gegnum það kerfi. Ég verð að segja alveg eins og er að mér finnst þetta fáránlegt að því leyti til að menn eru að tala um að það eigi að auka frelsið og fjölbreytnina með því að taka þá sem eru öflugastir út af markaðnum. Það er þá líklegt til að auka fjölbreytnina.
Mín skoðun er sú að aðalatriðið sé að það sé opin leið fyrir alla sem geta og vilja komast í rekstur af þessu tagi til að komast inn í hann með leyfisveitingum sem hér eru til staðar. Menn eiga ekki að nota þær leyfisveitingar til að lemja á einhverjum fyrirtækjum eins og ég nefndi hér áðan. Það er bara þannig, svo að ég haldi áfram með Kántríbæ á Skagaströnd, að Hallbjörn Hjartarson hefur leyfi til útvarps og fyrsta atriðið í frv. sem hæstv. ráðherra ætlar að styðja er eftirfarandi, með leyfi forseta:
,,Óheimilt er að veita leyfi til útvarps til fyrirtækis sem hefur að meginmarkmiði rekstur sem er óskyldur fjölmiðlarekstri.`` --- Hvað er rekstur Kántríbæjar skyldur fjölmiðlarekstri? Ekki neitt. Þetta er veitingahús. Og honum er bannað að halda áfram að reka útvarpið af því að hann er í veitingarekstri.