Jónína Bjartmarz (andsvar):
Frú forseti. Til að halda því til haga velti ég því upp að við þyrftum að skoða aðstæður í breyttu umhverfi eftir að frv. yrði að lögum, og eitt af því sem við þyrftum að skoða væri hvaða áhrif það hefði á rekstrargrunn einkareknu miðlanna. Ég var ekki að kynna stefnu Framsfl. Þetta voru hugleiðingar mínar um hvað breytt umhverfi á þessu sviði gæti m.a. leitt af sér.
Hvað afnotagjöldin varðar er ég annarrar skoðunar, frú forseti, en hv. þm. Ég tel ekki að sterkt ríkisútvarp standi og falli með einhverju sem heitir afnotagjald á sama hátt og mér hafa fundist deilur um rekstrarform Ríkisútvarpsins eins konar deilur um keisarans skegg. Rekstrarformið skiptir litlu til eða frá. Fjármagna má á sama hátt af myndarskap ríkisútvarp/sjónvarp með einhverju sem heitir nefskattur alveg eins og með afnotagjöldum, og nefskattur hefur þann kost umfram afnotagjöldin að hann er á hvern haus. (Forseti hringir.) En nú vitum við að hægt er að fylgjast með sjónvarpi á öðrum miðlum (Forseti hringir.) þannig að afnotagjöldin eru barn síns tíma.