Eignarhald á fjölmiðlum á Íslandi, munnleg skýrsla menntamálaráðherra

Miðvikudaginn 28. apríl 2004, kl. 18:50:58 (7023)

2004-04-28 18:50:58# 130. lþ. 105.1 fundur 509#B eignarhald á fjölmiðlum á Íslandi, munnleg skýrsla menntamálaráðherra# (munnl. skýrsla), dómsmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 105. fundur, 130. lþ.

[18:50]

Dómsmálaráðherra (Björn Bjarnason) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég byggi afstöðu mína á málinu sem hv. þm. spyr um á skýrslunni sem liggur fyrir og ég vona að hv. þm. hafi lesið. Ég byggi það m.a. á því sem ég las upp í umræðunum og vísaði í greinargerðina og skýrsluna á bls. 79. Ég bið hv. þm. um að kynna sér það.