Eignarhald á fjölmiðlum á Íslandi, munnleg skýrsla menntamálaráðherra

Miðvikudaginn 28. apríl 2004, kl. 21:43:52 (7050)

2004-04-28 21:43:52# 130. lþ. 105.1 fundur 509#B eignarhald á fjölmiðlum á Íslandi, munnleg skýrsla menntamálaráðherra# (munnl. skýrsla), PHB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 105. fundur, 130. lþ.

[21:43]

Pétur H. Blöndal (andsvar):

Frú forseti. Það er eðli stjórnmála að velja úr leiðum að ákveðnu marki. Ég veit að við hv. þm. höfum ekki sömu skoðun á því hvort fara eigi samtryggingarleið eða einkavæðingarleið í uppbyggingu á þjóðfélaginu. Ég treysti á einstaklinginn. Hann treystir á samtrygginguna. Þetta eru bara tvær mismunandi lífsskoðanir. Ég er ekkert að segja að hans lífsskoðun sé röng, né getur hann sagt að mín sé röng.