Eignarhald á fjölmiðlum á Íslandi, munnleg skýrsla menntamálaráðherra

Miðvikudaginn 28. apríl 2004, kl. 21:47:57 (7055)

2004-04-28 21:47:57# 130. lþ. 105.1 fundur 509#B eignarhald á fjölmiðlum á Íslandi, munnleg skýrsla menntamálaráðherra# (munnl. skýrsla), SigurjÞ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 105. fundur, 130. lþ.

[21:47]

Sigurjón Þórðarson (andsvar):

Frú forseti. Mig langar að beina þeirri spurningu til hv. þm. Péturs H. Blöndals sem hefur mikið vit á fjármálum hvort þessi skammi frestur sem fjölmiðlafyrirtækjum er ætlaður til að breyta eignarhaldi sínu, þessi tvö ár, geti ekki rýrt eignir eigenda fyrirtækjanna. Er ekki skynsamlegt og sanngirnismál að hafa frestinn lengri?