Guðlaugur Þór Þórðarson (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég hef aldrei haldið því fram að hv. þm. hafi sagt að það að vera með markaðsráðandi stöðu væri glæpur. Ég átta mig því ekki alveg á því af hverju verið er að leggja það upp hér með þeim hætti.
Það sem ég sagði í ræðunni, í andsvarinu og í nokkrum andsvörum var að markmiðið væri þetta og prinsippspurningin er sú hvort menn telji eðlilegt að markaðsráðandi fyrirtæki stjórni umræðunni um sjálf sig. Svo einfalt er það mál.
Í frv. er farin ákveðin leið og væntanlega erum við með frv. í meðförum þingsins til þess að meta hvort það sé rétta leiðin til að ná því markmiði eða hvort einhver önnur sé betri. Ég held að þetta 1% til og frá skipti eðli máls samkvæmt engu máli. Það sem ég hef reynt að draga fram eru aðalatriði málsins og ég hef kallað eftir því hvort menn séu með aðrar hugmyndir. Það liggur fyrir að einn þingmaður Samf. vill ekki hrófla neitt við þessu. Samf. almennt hefur viljað hafa stöðuna eins og hún er. Þó hefur mér fundist að þingmenn flokksins séu að draga í land í umræðunni í kvöld. (BH: Hver er að draga í land?)