Bryndís Hlöðversdóttir:
Virðulegi forseti. Ég kveð mér hljóðs vegna þess að ég hafði beðið hæstv. viðskrh. um að fá afhent gögn sem hún hefur undir höndum, tillögur nefndar sem hún skipaði vegna þess máls sem verður til umfjöllunar síðar í dag, um brot á samkeppnislögum, og hugsanleg skil á milli annars vegar Samkeppnisstofnunar og hins vegar lögreglu. Hún skipaði nefnd sem skilaði af sér fyrir þremur mánuðum. Gögnin hafa legið á borði ríkisstjórnarinnar síðan þá.
Vegna þeirrar umræðu sem fer fram í dag óskaði þingflokkur Samf., tæplega 1/3 hluti þingmanna, eftir því að þessar tillögur nefndarinnar yrðu lagðar hér fram og að við fengjum þær afhentar þannig að við gætum átt sem eðlilegasta og besta umfjöllun um þau mál á eftir. Svarið kom skriflega frá hæstv. viðskrh. í gær. Hún neitar með vísan til upplýsingalaga og segir sér heimilt samkvæmt upplýsingalögum að neita almenningi um aðgang að skjölum eða gögnum sem eru til meðferðar hjá hæstv. ríkisstjórn.
Virðulegi forseti. Upplýsingalög gilda ekki um upplýsingaskyldu ráðherra gagnvart Alþingi. Ég vísa til þess að hér er um að ræða 20 manna þingflokk sem óskar eftir þessum gögnum vegna umræðu sem mun eiga sér stað í dag og líka í ljósi þess að hér liggur fyrir þingmál um sama efni. Hæstv. ríkisstjórn telur sig geta lúrt á þessum gögnum mánuðum saman og ég spyr, virðulegi forseti: Hvaða ríkisleyndarmál eru fólgin í þessum niðurstöðum umræddrar nefndar sem átti þó að fá það hlutverk eitt að skera úr um valdmörk á milli tveggja stofnana? Það var ekki alvarlegra en það.
Ég mun krefjast þess, virðulegi forseti, að hv. forsn. taki það til alvarlegrar skoðunar hversu langt hæstv. ráðherrar ganga í þessum efnum með því að vísa til upplýsingalaga sem þeir virðast ekki einu sinni átta sig á að gilda ekki um beiðni þingsins og þingmanna um gögn sem þeir hafa í vörslu sinni. Ég geri alvarlega athugasemd við þetta, virðulegi forseti, og spyr hæstv. ráðherra líka: Hvers vegna þessi leynd?