Útlendingar

Fimmtudaginn 29. apríl 2004, kl. 11:48:35 (7131)

2004-04-29 11:48:35# 130. lþ. 106.1 fundur 749. mál: #A útlendingar# (aðlögunarheimildir stækkunarsamnings ESB og EES o.fl.) frv. 20/2004, Frsm. meiri hluta BjarnB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 106. fundur, 130. lþ.

[11:48]

Frsm. meiri hluta allshn. (Bjarni Benediktsson) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil bara taka það fram að ábending hv. þingmanns á fullan rétt á sér. Hún varð tilefni til athugasemda sem meiri hluti nefndarinnar gerði í nefndaráliti sínu. Telji hv. þingmaður enn þörf á að breyta lagatextanum er honum að sjálfsögðu frjálst að leggja fram brtt. við frv. áður en það fer í 3. umr.