Bryndís Hlöðversdóttir (andsvar):
Virðulegur forseti. Ég held að við séum öll sammála um að það eigi að banna nauðungarhjónabönd og dvalarleyfi veitt á grundvelli þeirra. Það er ekki deilt um það, virðulegi forseti. Deilt er um það að hæstv. ríkisstjórn taki sérstaklega út þennan tiltekna hóp og setji um hann aðra reglu en aðra. Auðvitað er ungt fólk vissulega í meiri hættu en aðrir. Er þá ekki nóg að hafa bannið í íslenskum lögum og nota síðan þau úrræði sem fyrir eru til að koma í veg fyrir það, heldur en að takmarka sérstaklega persónufrelsi þessa tiltekna hóps? Auðvitað er hættan alveg jafnmikil þegar viðkomandi verður 24 eða 25 eða 26. Þetta er algjör fásinna.
Hæstv. ríkisstjórn hefur fallið í þá gryfju að vera að leita fordæma hjá umdeildustu útlendingalöggjöf sem gildir nánast í allri Evrópu, nýju dönsku útlendingalöggjöfinni. Þetta ákvæði ekki hvað síst hefur verið umdeildast. Það hefði verið rétt, virðulegi forseti, að hæstv. ríkisstjórn hefði farið að ráðum okkar í Samf. og frestað öllum þessum umdeildu ákvæðum fram á haustið og vandað betur heimavinnuna sína.