Bryndís Hlöðversdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Hv. þm. Sigurður Kári Kristjánsson kaus að eyða nokkrum tíma ræðu sinnar í að rifja upp gagnrýni sem hefði komið fram fyrst á frv., og hugsanlega að einhverju leyti ómaklega að því er á honum mátti skilja. Virðulegi forseti. Ég hlýt að vekja athygli á því að þrátt fyrir að hæstv. ríkisstjórn hafi hugsanlega tekist að leiðrétta einhvern misskilning sem upp kom í upphafi þessa máls standa engu að síður eftir fjöldamótmæli, umsagnir eftir alla þá umræðu sem þetta mál hefur fengið, mjög neikvæðar umsagnir margra virtra aðila um stór atriði í málinu sem hér hefur verið vakin athygli á. Það er ekki, virðulegi forseti, eins og þetta sé allt saman byggt á misskilningi. Eins og ég sagði áðan, ef svo er og ef það er næg ástæða til að draga lagasetninguna til baka er það vond lagasetning.
Hv. þm. sagði líka að haft hefði verið samráð við þá sem vinna með lögin og nefndi Útlendingastofnun og lögreglustjórann á Keflavíkurflugvelli. Ég vil benda á að þeir sem vinna með þessi lög eru líka Rauði kross Íslands, Alþjóðahúsið og fleiri aðilar sem var ekkert samráð haft við. Það eru þeir sem vinna með fólkið sem þessi lög ná til. Af hverju í ósköpunum var ekki jafnmikil ástæða til að hafa samráð við þá aðila og hlusta á röksemdir þeirra sem koma fram í þeim umsögnum sem þessir aðilar hafa lagt fram í stað þess að afgreiða allar þeirra umsagnir með þeim rökum að hér sé um misskilning að ræða?