Össur Skarphéðinsson (andsvar):
Frú forseti. Ég ætla bara að rifja það upp fyrir hv. þm. að það er einmitt fyrir tilstilli Evrópusambandsins sem tilraunaverkefnið sem er í gangi núna varðandi vetnisnýtingu á Íslandi var kleift. Evrópusambandið styrkti það með 40% af stofnkostnaði. Evrópusambandið er líka sú stofnun í heiminum sem mestu ver af fjármunum til að reyna að þróa aðra orkugjafa sem eru líka umhverfisvænir eins og það afl sem býr í brimi hafsins og ölduhreyfingum.
Það sem ég gerði mér ekki grein fyrir áður en hv. þm. hélt ræðu sína áðan er að nefndin sem ég gerði að umræðuefni er að sinna allt öðru en ég réði af fyrri ræðum þingmannsins í þessum sal. Þar er við engan að sakast nema bara mitt eigið tornæmi. Hv. þm. sagði, að því er ég skildi hann, að nefndin væri fyrst og fremst að leggja grunn að stefnu um gjaldtöku ríkisins og fjáröflun til vegagerðar þegar umskiptin í einhverjum umtalsverðum mæli yfir í þessa nýju tegund bifreiða væri orðin.
Ég taldi að nefndin ætti líka að reyna að leggja fram hugmyndir um það með hvaða hætti mætti nota skattalega hvata til þess að ýta mönnum út í þetta. Gott og vel, ég ætla ekki að deila frekar við hv. þm. um það. Ég ætla hins vegar að rifja það upp fyrir honum að nú þegar eru 44 bílar í Reykjavík sem ganga fyrir metani en þeir gætu verið 5 þúsund. Ég veit að þetta er ekki framtíðarlausn en þarna er um að ræða innlenda orkugjafa og ef hægt væri að nýta 5 þúsund bíla drægi það úr losun skaðlegra lofttegunda sem nemur 15 þús. tonnum af CO2. Það skiptir máli og hví ekki að samþykkja svona ákvæði til þess að ýta undir notkun slíkra bíla?