Þróunarsjóður sjávarútvegsins

Fimmtudaginn 29. apríl 2004, kl. 21:07:22 (7245)

2004-04-29 21:07:22# 130. lþ. 106.13 fundur 786. mál: #A Þróunarsjóður sjávarútvegsins# (afnám gjalda) frv. 51/2004, MÞH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 106. fundur, 130. lþ.

[21:07]

Magnús Þór Hafsteinsson (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Guðjóni Hjörleifssyni fyrir svörin svo langt sem þau náðu.

Ég sé, frú forseti, að sjútvrh. er í húsinu. Hann gæti hugsanlega svarað einhverjum af spurningum mínum í ræðu á eftir. En ég læt þetta gott heita að sinni.