Magnús Þór Hafsteinsson (um atkvæðagreiðslu):
Hæstv. forseti. Ég kem í ræðustól sem fulltrúi þingflokks Frjálsl. Ég vil í upphafi máls míns geta þess að þrír af fjórum þingmönnum þingflokksins eru því miður fjarverandi vegna skyldustarfa og geta ekki verið hér til að greiða atkvæði. Ég minni jafnframt á að atkvæði okkar, allra fjögurra í þingflokki Frjálsl., féllu á sama veg og atkvæði stjórnarandstöðunnar í gær.
Ég minni líka á, frú forseti, að stjórnarandstaðan hefur verið einhuga og samstiga í andstöðu sinni gegn þessu frv. Ég minni líka á að ungliðahreyfingar allra stjórnmálaflokka Íslands voru sammála í andstöðu sinni gegn frv. Auk þess mótmæltu því mörg samtök sem láta sig varða hagsmuni innflytjenda á Íslandi, mannréttindasamtök og fleiri.
Frú forseti. Eins og ég sagði í upphafi máls míns þá mæli ég fyrir hönd þingflokks Frjálsl. Við segjum já við brtt. á eftir og nei við frv.