SÞorg fyrir ÁMM

Mánudaginn 03. maí 2004, kl. 15:01:41 (7327)

2004-05-03 15:01:41# 130. lþ. 108.95 fundur 528#B SÞorg fyrir ÁMM#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 108. fundur, 130. lþ.

[15:01]

Forseti (Halldór Blöndal):

Borist hefur svohljóðandi bréf frá formanni þingflokks sjálfstæðismanna, Einari K. Guðfinnssyni, dags. 3. maí:

,,Þar sem Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra, 1. þm. Suðvesturkjördæmis, er á förum til útlanda í opinberum erindum og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, Sigurrós Þorgrímsdóttir stjórnmálafræðingur, Kópavogi, taki sæti hans á Alþingi á meðan.``

Sigurrós Þorgrímsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.