Útvarpslög og samkeppnislög

Mánudaginn 03. maí 2004, kl. 16:19:18 (7365)

2004-05-03 16:19:18# 130. lþ. 108.2 fundur 974. mál: #A útvarpslög og samkeppnislög# (eignarhald á fjölmiðlum) frv. 48/2004, forsrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 108. fundur, 130. lþ.

[16:19]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég nefndi það áðan og vona að það hafi ekki farið fram hjá hv. þm. að frv. horfir til frambúðar og framtíðar. Við erum ekki að leggja mælistiku á 20 ára löngu liðinn tíma. Auðvitað geta menn gert það og hv. þm. getur lesið frv. og gert það. Ég sé enga sérstaka þörf á því.