Útvarpslög og samkeppnislög

Mánudaginn 03. maí 2004, kl. 16:23:02 (7369)

2004-05-03 16:23:02# 130. lþ. 108.2 fundur 974. mál: #A útvarpslög og samkeppnislög# (eignarhald á fjölmiðlum) frv. 48/2004, forsrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 108. fundur, 130. lþ.

[16:23]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég er ekki alveg viss um að ég hafi fylgt hv. þm. nákvæmlega eftir í öllum fyrirspurnum hans og hringlanda. Hann vildi umræðu um málið og helst lengja þingið, bíddu, við erum einmitt að leggja það til. En hv. þm. greiddi atkvæði gegn því rétt áðan að það yrði gert. --- Það þýðir ekkert að gapa framan í mig, hv. þm.