Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég vona að sú afstaða mín hafi komið skýrt fram að ég fylgi frv. eins og það er en hins vegar fer það að sjálfsögðu til umræðu og afgreiðslu á hv. Alþingi og fær þinglega meðferð. Aðilar úti í samfélaginu munu að sjálfsögðu tjá sig um málið þannig að ég vil sjá hvernig sú umræða þróast. En ég vona að það fari ekkert á milli mála að ég er fylgjandi frv. eins og það er.