Útvarpslög og samkeppnislög

Mánudaginn 03. maí 2004, kl. 17:35:04 (7391)

2004-05-03 17:35:04# 130. lþ. 108.2 fundur 974. mál: #A útvarpslög og samkeppnislög# (eignarhald á fjölmiðlum) frv. 48/2004, heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 108. fundur, 130. lþ.

[17:35]

Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (andsvar):

Herra forseti. Það ákvæði er nákvæmlega til þess að sporna við samruna í fjölmiðlum. Það er nákvæmlega þetta ákvæði sem ýmsir núverandi flokksbræður hv. þm. lýstu áhyggjum yfir árið 1995. Það er nákvæmlega af þeirri ástæðu sem sú umræða spratt og það er ljóst að samruninn hefur verið miklu meiri en menn sáu fyrir þá, fyrir tíu árum. Það er þess vegna sem ég fylgi frv.