Útvarpslög og samkeppnislög

Mánudaginn 03. maí 2004, kl. 17:37:02 (7393)

2004-05-03 17:37:02# 130. lþ. 108.2 fundur 974. mál: #A útvarpslög og samkeppnislög# (eignarhald á fjölmiðlum) frv. 48/2004, heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 108. fundur, 130. lþ.

[17:37]

Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (andsvar):

Herra forseti. Það er að sjálfsögðu alger oftúlkun að verið sé að grípa inn í prentfrelsið og satt að segja finnst mér mjög sérkennileg þessi eilífa umæða um útvarp Kántrýbæ á Skagaströnd því það er undanþáguákvæði í frv. sem varðar svæðisbundna fjölmiðlun þannig að sú umræða er náttúrlega algerlega út í hött.