Útvarpslög og samkeppnislög

Mánudaginn 03. maí 2004, kl. 18:06:27 (7407)

2004-05-03 18:06:27# 130. lþ. 108.2 fundur 974. mál: #A útvarpslög og samkeppnislög# (eignarhald á fjölmiðlum) frv. 48/2004, DrH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 108. fundur, 130. lþ.

[18:06]

Drífa Hjartardóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég tel að það sé rangt að markaðsráðandi fyrirtæki eigi fjölmiðla hér á landi því að við verðum að tryggja lýðræðið. Eins og Samf. er mikið með lýðræðið á sínum vörum alla daga er ég aldeilis undrandi yfir því að þeir skuli ekki taka heils hugar undir frv.