Útvarpslög og samkeppnislög

Mánudaginn 03. maí 2004, kl. 18:14:45 (7413)

2004-05-03 18:14:45# 130. lþ. 108.2 fundur 974. mál: #A útvarpslög og samkeppnislög# (eignarhald á fjölmiðlum) frv. 48/2004, DrH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 108. fundur, 130. lþ.

[18:14]

Drífa Hjartardóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég get bara sagt að það er mikil sátt um frv. í mínum þingflokki. Framsfl. svarar fyrir sig og hefur gert það hér í umræðunni.

Hv. þm. Magnús Þór Hafsteinsson talaði um ómálefnalega eða skömmustulega grein á netinu. Ég veit ekki betur en að hann sé ansi liðtækur á netinu með sínar greinar.