Helgi Hjörvar (andsvar):
Virðulegur forseti. Þetta er af minni hálfu ekkert pólitískt tog. Ég vil einfaldlega, sem varaformaður stjórnar Reykjavíkurhafnar, upplýsa hið háa Alþingi um þann kostnað sem embættismenn Reykjavíkurhafnar og stjórnendur flutningafyrirtækjanna við Reykjavíkurhöfn telja að þetta frv. muni hafa í för með sér. Ég geri athugasemdir við að hv. formaður samgn. geri lítið úr þeim kostnaði. Ég er ekki að deila um hvort sá kostnaður kunni að vera óhjákvæmilegur eða krefjast þess að leitað verði annarra leiða. Ég tel eðlilegt að hv. þm. séu upplýstir um hvers konar fjárhæðir eru hér á ferðinni, þ.e. hátt í 200 millj. kr. á ári sem þessar aðgerðir munu kosta í Reykjavíkurhöfn einni.
Ég trúi því að hv. þm. Guðmundur Hallvarðsson hafi þá reynslu af embættismönnum Reykjavíkurhafnar, sem fyrrverandi formaður hafnarstjórnar, að þær upplýsingar sem þeir leggja fyrir hafnarstjórn um kostnað við framkvæmdir og rekstur í Reykjavíkurhöfn séu áreiðanleg gögn og því ástæða til þess að upplýsa þingheim um þann kostnað en ekki draga úr honum, eða láta eins og hann verði ekki. Þá væri þinginu sannarlega ekki gefin rétt mynd af því frv. sem hér liggur fyrir.