Forseti (Halldór Blöndal):
Ég vil vekja athygli hv. alþingismanna á því að forseti Eistlands, hr. Arnold Rüütel, er staddur á þingpöllum ásamt fylgdarliði. Forseti Eistlands er hér í heimsókn í Alþingishúsinu í tengslum við opinbera heimsókn hans hingað til lands í boði forseta Íslands.
Ég vil fyrir hönd Alþingis bjóða forseta Eistlands, Arnold Rüütel, velkominn í Alþingishúsið. Ég vænti þess að heimsókn hans til Íslands verði til þess að styrkja enn frekar þau góðu tengsl sem eru á milli landanna.
Alþingi vottar forseta Eistlands og eistnesku þjóðinni vináttu og virðingu. Ég bið hv. alþingismenn að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum. --- [Þingmenn risu úr sætum.]