Frsm. samgn. (Guðmundur Hallvarðsson) (andsvar):
Herra forseti. Varðandi það sem hv. þm. Kristján Möller kom inn á, þá gjaldtöku sem heimiluð er, þá er upptalið fyrir hvað taka má gjöld. Ég geri ekki ráð fyrir því að t.d. Siglufjarðarhöfn hafi miklar tekjur af dráttarbát. Ég geri ekki heldur ráð fyrir því að hún hafi miklar tekjur af ýmsum fleiri þáttum sem upp eru taldir.
Það er hins vegar eðlilegt að upp sé talið hvaða gjöld hafnirnar mega taka. Áður fyrr gaf samgrn. út gjaldskrá sem allar hafnir áttu að fara eftir. Það blasir hins vegar við, með minnkandi fiskiskipastól og breyttri aflasamsetningu, að því miður munu nokkrar hafnir á landinu ekki lifa af þessar breytingar. En er það það sem hv. þm. er að tala um, að arðsemi hafnanna eða rekstur þeirra skipti ekki máli, heldur sé eðlilegt að veita áfram háa ríkisstyrki til hafnanna án tillits til þarfarinnar fyrir viðkomandi höfn eða sveitarfélag?
Ég geri mér grein fyrir því að það skiptir miklu máli í mörgum sjávarplássum að höfnin sé þannig úr garði gerð að skip sæki þangað til þess að kaupa sér þjónustu. Þá kemur að þeim þjónustuþáttum og þjónustuliðum sem tilteknir eru hvað kostnað áhrærir.
Þannig er eðlilegt að upp sé talið hvaða gjöld eigi að taka en það þýðir ekki, eins og mátti skilja á málflutningi hv. þm. Kristjáns Möllers, að hér sé með gjaldskrá upptalið hvað innheimta eigi þegar skip koma í höfn. Hér er aðeins talað um hvaða þjónustuþætti hafnirnar mega taka gjöld fyrir.