Frsm. minni hluta sjútvn. (Jóhann Ársælsson) (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég vil ekki liggja undir því að ég sé að halda því fram að einhverjir starfsmenn í ráðuneytinu vilji halda einhverju leyndu. Ég held því bara hiklaust fram að stjórnvöld, sjútvrh., hafi ákveðið að láta þessi mál ganga svona fram. Og ég held því alveg hiklaust fram að menn hafi vitað mjög nálægt lagi hvað það væri nokkurn veginn sem hægt væri að fá inn fyrir veiðigjaldið, vegna þess að það er alveg skýrt í lögunum hvernig á að fara að því að reikna þetta út. Annað eins hafa menn nú kunnáttu til að gera eins og að gera áætlun sem byggir á því að vera nokkurn veginn með allar staðreyndir í höndunum.
Það er þess vegna sem ég er tortrygginn þegar ég fæ þessa grófu áætlun sem hv. þm. var að nefna áðan og að það sem eftir stendur er það að ríkissjóður virðist eiga að sitja uppi með það að tapa verulegum fjármunum á sama tíma og ríkisstjórnin er að taka upp veiðigjaldið sem hún lýsti svo fjálglega að ætti að vera sátt við þjóðina sem væri fólgin í því að útgerðin í landinu færi að greiða fyrir aðganginn að auðlindinni. Annaðhvort er á ferðinni stefnubreyting eða einhver skrýtinn brandari. Ég get ekki sagt annað.
Ég vil gjarnan að við fáum tækifæri í nefndinni til að fara yfir þessa hluti því það liggur alveg ljóst fyrir að það er bara handavinna að finna dagsetningar á þróunarsjóðinn og veiðieftirlitsgjaldið til þess að stemma þetta þannig saman að menn fái þá tölu sem þeir ætluðu sér að fá. Hafi þetta verið talan sem menn ætluðu sér að fá þá þurfa menn líka að segja frá því hvers vegna þeir eru komnir að nýrri niðurstöðu um það hvernig veiðigjaldið á að virka úr því það á að virka til lækkunar.