Sigurjón Þórðarson:
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Bjarnasyni fyrir að hreyfa við þessu ágæta máli. Ég veit sem er að víðar en í Húnaþingi vestra eru undirskriftalistar í gangi. Ég veit ekki betur en að undirskriftalisti sé í Fljótunum. Menn sætta sig einfaldlega ekki við að vera ekki í GSM-sambandi og að gagnaflutningar séu mjög hægir. Þetta er spurning um byggðastefnu.
Ég heyrði, ef ég man rétt, viðtal við forstjóra Landssímans þar sem hann sagðist vera að bíða eftir pólitískum skilaboðum frá hæstv. samgrh. Mér finnst kominn tími til að hann segi hvað hann vill vegna þess að fólk í hinum dreifðu byggðum óttast að það verði enn erfiðara að hreyfa við þessum málum eftir að Síminn hefur verið seldur. Ég tel þess vegna að það væri mikið til bóta ef hæstv. samgrh. gæfi í rauninni skýr pólitísk skilaboð um hver vilji hans er í þessu máli.