Fyrirspyrjandi (Kristinn H. Gunnarsson):
Herra forseti. Forsenda þess að ríkið kemur að atvinnuuppbyggingu eins og í þessu tilviki er auðvitað sú að styrkja atvinnulíf á landinu, sérstaklega á þeim stað þar sem atvinnustarfsemi fer fram. Ekki geri ég neinar athugasemdir við það að ríkisstjórnin leggi til að settir verði peningar úr ríkissjóði til þeirra verkefna, hvort sem það er Bláa lónið eða annars staðar. Ég hygg að það geti verið spennandi að fylgjast með því hvort ekki rætist þau áform manna þar að með þessari aðstöðu takist að fá fleiri erlenda gesti til landsins sem koma hingað gagngert til að nýta sér þjónustuna sem er í Bláa lóninu. Það skapar bæði atvinnu- og gjaldeyristekjur fyrir þjóðina.
Á hinn bóginn vil ég minna á að atvinnuuppbygging er auðvitað viðfangsefni ríkisins líka annars staðar á landinu. Sérstaklega tel ég brýnt að ríkisstjórnin hugi að því á þeim svæðum landsins þar sem samdráttur er. Ég vil nefna norðvesturhluta landsins, bæði Húnavatnssýslu og Vestfirði. Allar tölur sem mönnum eru aðgengilegar, t.d. hjá Hagstofu Íslands, bera þess vitni að það er samdráttur í helstu atvinnugreinum á þessu landsvæði. Það er því full þörf á því, virðulegi forseti, að ríkisvaldið sýni myndarskap við stuðning við atvinnuuppbyggingu á þessu landsvæði, ekki síður en á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni þess.