Sigurjón Þórðarson:
Frú forseti. Ég verð að játa að ég skildi alls ekki svarið við spurningu hv. þm. Kristins H. Gunnarssonar. Lesið var úr lögum fram og aftur og hingað og þangað í lagabálkum en þetta mál skiptir verulega miklu máli vegna þess að fólk á landsbyggðinni er óöruggt um hvort það njóti raunverulegra brunatrygginga og því tel ég að við þurfum að fá skýr svör frá hæstv. ráðherra. Ég vil minna hæstv. ráðherra á að hún er einnig byggðamálaráðherra, ráðherra byggðamála, og ég tel að það skipti verulega miklu máli fyrir landsbyggðina hvort fólk sé raunverulega tryggt fyrir brunatjóni eða ekki. Ég verð að segja að eftir svar hæstv. ráðherra skil ég raunar ekkert hvað hún er að fara og ég óska eftir skýrari svörum.