Bryndís Hlöðversdóttir:
Virðulegur forseti. Ég held að hæstv. forseti verði að svara því skýrar en svo að það komi til álita að setja málið á dagskrá í fyrramálið. Ég tel að hæstv. forseti verði að svara því skilmerkilega hvort það standi til að halda áfram þeirri flýtimeðferð sem tjáningarfrelsið hefur fengið í sölum hins háa Alþingis, því ef hæstv. forseti getur gert það uppskátt að málið verði tekið á dagskrá í fyrramálið þarf minni hluti þingsins að nota nóttina í að vinna nál.
Ég vona að hæstv. forseti geri sér grein fyrir því að hv. allshn. sat að störfum til klukkan tíu í kvöld. Einhverra hluta vegna tókst meiri hlutanum að semja nál. og ítarlegar brtt. í kvöldmatarhléinu, sem okkur vannst ekki tími til að gera, og þess vegna geri ég alvarlegar athugasemdir við það ef meiningin er að minni hlutinn eigi að vinna nál. sitt í skjóli nætur og spyr: Hvað, hæstv. forseti, gerir það að verkum að málið þolir ekki dagsljós lýðræðislegrar rökræðu í sölum Alþingis? Hvers vegna má varla líða einn dagur enn sem málið er í umræðu, virðulegi forseti?
Ég trúi ekki öðru en hæstv. forseti standi a.m.k. vörð um þann litla sóma sem stofnunin á eftir við meðferð málsins gagnvart ofríki ríkisstjórnarinnar. Ég spyr: Er hann hér til að gæta sóma Alþingis eða er hann hér til að gæta hagsmuna ríkisstjórnarinnar?