Heimsókn forseta ungverska þingsins

Þriðjudaginn 11. maí 2004, kl. 10:34:32 (7794)

2004-05-11 10:34:32# 130. lþ. 112.93 fundur 547#B heimsókn forseta ungverska þingsins#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 112. fundur, 130. lþ.

[10:34]

Forseti (Halldór Blöndal):

Ég vil vekja athygli hv. alþingismanna á því að forseti ungverska þingsins, frú Katalin Szili, er stödd á þingpöllum ásamt fylgdarliði. Forsetinn og fylgdarlið hennar eru stödd hér á landi í boði Alþingis.

Ég vil fyrir hönd Alþingis bjóða forseta ungverska þingsins og fylgdarlið velkomin í Alþingishúsið og vænti þess að heimsókn þeirra til Íslands verði til þess að styrkja enn frekar þau góðu tengsl sem eru á milli landanna.

Alþingi vottar forseta ungverska þingsins og ungversku þjóðinni vináttu og virðingu. Ég bið hv. alþingismenn að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum. --- [Þingmenn risu úr sætum.]