Forseti (Halldór Blöndal):
Vegna ummæla hv. þingmanns er rétt að taka fram að mér hafði borist beiðni frá hv. 3. þm. Norðaust., varaformanni þingflokks Samf., um að fundi yrði frestað til kl. tvö og ég hafði skýrt forsrh. frá því að ég mundi verða við þeirri beiðni. Ég vil ekki að neinn misskilningur sé á ferðinni í þeim efnum. Það mál er nú svo vaxið, enda er það einnig vani. Ég hygg að hv. þingmaður viti það af langri þingreynslu að ef formenn þingflokka óska eftir því að eiga fund með forseta er við því orðið. Ég hafði hugsað mér að sá fundur yrði þegar þessum fundi yrði slitið en enn hafa nokkrir þingmenn kvatt sér hljóðs um störf þingsins og mér finnst sjálfsagt að sú umræða fari fram áður en mér gefst tóm til að hitta formenn þingflokka hér niðri.