Afgreiðsla fjölmiðlafrumvarps

Miðvikudaginn 12. maí 2004, kl. 11:11:00 (7983)

2004-05-12 11:11:00# 130. lþ. 113.92 fundur 552#B afgreiðsla fjölmiðlafrumvarps# (um fundarstjórn), Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 113. fundur, 130. lþ.

[11:11]

Forseti (Halldór Blöndal):

Ég held að hv. þingmaður skilji ekki það sem ég er að segja, þ.e. að það sé sjálfsagður réttur hvers þingmanns að skila nefndaráliti hvenær sem honum svo sýnist og hann telur að umfjöllun nefndar um eitthvert mál sé lokið. Aðrir nefndarmenn eru ekki skyldugir til að fara í það en það er réttur hvers þingmanns að gera það. Fyrir því eru ótal mörg fordæmi. Ég veit ekki hvort ég er rétti maðurinn til að útskýra það nákvæmlega fyrir hv. þingmanni.