Forseti (Halldór Blöndal):
Ég vil áminna hv. þingmann um að tala til forseta Alþingis með viðeigandi hætti.
Ég vil einnig minna á að ég féllst á það að ræða við formenn þingflokka stjórnarandstöðunnar klukkan 12 á miðnætti og beið þess niðri í forsetaherbergi að þeir kæmu til fundar við mig. Mig minnir að þeir hafi ekki sýnt sig fyrr en kl. hálftvö.