Gunnar Örlygsson (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. Hjálmar Árnason hefur farið mikinn og sagt brtt. húsbónda síns, hæstv. forsrh. Davíðs Oddssonar, stórmerkilegar, að allir geti stundað hér ljósvakarekstur. Samkvæmt þessum brtt. talar hann um að húsbóndinn, hæstv. forsrh., hafi af auðmýkt sinni slegið því á frest að gildistími útvarpsleyfis Bylgjunnar rynni út eins fljótt og fyrirhugað var.
Hvað er að gerast í kolli hv. þingmanns? Ætlar hann þjóðinni að trúa þessu endemis yfirvarpi sínu? Gerir hv. þm. sér ekki grein fyrir þeim vanda sem steðjar að einum stærsta vinnustað landsins? Býr hv. þm. yfir einhverri ofurbjartsýni í þessu máli? Lífeyrissjóðirnir eiga til að mynda 2 milljarða undir því að þetta fyrirtæki fái áfram að starfa. Við erum eigendur lífeyrissjóðanna, fólkið í landinu. Væri ekki gáfulegra, hv. þm. Hjálmar Árnason, að staldra við þar sem stórir fjármunir eru í húfi fyrir almenning í landinu, atvinnufrelsi, mannréttindi og þaðan af meira?