Hjálmar Árnason (andsvar):
Virðulegur forseti. Síðustu orð hv. þingmanns dæma sig auðvitað sjálf. (Gripið fram í.) Ég tel að hv. þingmaður hafi með þessu síðara andsvari sínu staðfest það að hann hefur breytt um skoðun frá því að hann stóð hér í þessum (Gripið fram í.) ræðustól og hrópaði á ríkisstjórnina (Gripið fram í.) að grípa þegar í stað til ráðstafana gagnvart þeim aðilum sem væru ráðandi, gagnvart því sem hann kallaði blokkir. Í dag segir hv. þm.: Það eru engin rök. Það kom hér fram í síðara andsvari hv. þm. Össurar Skarphéðinssonar. Það segir mér að hann staðfestir það. Það eru engin rök. Það eru engin tilefni til þess að fara gegn því sem hann kallaði eftir fyrir nokkrum missirum.
Hvað varðar þann einstakling sem hv. þm. nefndi hérna eru það tíðindi fyrir mig ef hann er einkavinur Framsfl. Ég vissi ekki betur en að með Jóni Ólafssyni, brottfluttum Keflvíkingi, og krötunum hefðu ávallt verið afskaplega miklir kærleikar. En það veit hv. þm. ugglaust betur en ég.