Afgreiðsla fjölmiðlafrumvarps

Fimmtudaginn 13. maí 2004, kl. 10:41:04 (8089)

2004-05-13 10:41:04# 130. lþ. 114.94 fundur 558#B afgreiðsla fjölmiðlafrumvarps# (um fundarstjórn), Flm. ÖJ
[prenta uppsett í dálka] 114. fundur, 130. lþ.

[10:41]

Ögmundur Jónasson:

Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að fara að karpa hér við formann þingflokks Sjálfstfl. sem gerir lítið úr því að meiri hluti efh.- og viðskn. mælist til þess að þessu máli verði frestað. Hann kallar það farsa þegar Sjálfstfl. verður undir í þinginu. Ég kalla það lýðræðislegan vilja þingsins.

Ég ætla ekki að ræða efnisatriði þessa máls en beini þeirri ósk til forseta þingsins að hann geri hlé á þingfundinum í 10 mínútur þannig að formönnum þingflokka gefist ráðrúm til að koma saman til fundar og ræða þá stöðu sem nú er upp komin.