Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):
Forseti hlýðir á mótmæli hv. þingmanns en það er eins og fyrr að forseti ræður tæpast för hv. þingmanna eða einstakra ráðherra. Hann hefur freistað þess eftir því sem hann hefur getað að fá þá til fundar samkvæmt beiðni þingmanna. Meira getur forseti ekki gert í því máli.