Guðlaugur Þór Þórðarson (andsvar):
Virðulegi forseti. Þetta er nokkuð vandratað. Annars vegar er kvartað undan því að stjórnarmeirihlutinn taki ekki þátt í umræðunni. Síðan kemur hv. þm. Mörður Árnason og segir að þegar við tökum þátt í umræðum þá stundum við málþóf. Þetta er nú að verða nokkuð sérkennileg umræða svo ekki sé dýpra í árinni tekið.
Varðandi SPRON-málið þá held ég að sú löggjöf sem þar hafi verið sett hafi ekki verið skynsamleg. Ég er alveg viss um (Gripið fram í: Nú af hverju?) að það muni þurfa að taka þá löggjöf fljótlega upp aftur einfaldlega vegna þess að ég held að hún taki ekki mið af breyttum aðstæðum á fjármálamarkaðnum. Ég er sannfærður að menn muni þurfa að skoða þau mál fljótt hvað varðar þessa ágætu sparisjóði. Ég sagði það þá og ég segi það nú og get alveg rætt það við viðkomandi þingmann eða einhverja aðra hvenær sem er.