Útvarpslög og samkeppnislög

Laugardaginn 15. maí 2004, kl. 16:09:16 (8277)

2004-05-15 16:09:16# 130. lþ. 116.3 fundur 974. mál: #A útvarpslög og samkeppnislög# (eignarhald á fjölmiðlum) frv. 48/2004, BÁ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 116. fundur, 130. lþ.

[16:09]

Birgir Ármannsson (andsvar):

Herra forseti. Ég átta mig ekki alveg á spurningu hv. þingmanns. Það er í mínum huga spurning um heildarveltu þess fyrirtækis sem í hlut á. Þegar verið er að tala um fjölmiðlafyrirtæki er það að sjálfsögðu utan við. Ég hef a.m.k. alla tíð nálgast þetta með þeim hætti og held að þessi athugasemd hv. þingmanns byggist á misskilningi á ákvæðinu.